Ađalvalmynd

Auglýsing

Atburđarteljari

Arg

10. október 2008 klukkan 14:23
Jæja kannski að ég reyni að halda þessu bloggi svolítið uppi.

Ég er freeekar pirruð akkurat núna, bankinn minn er asnalegur og mér finnst ég ekki fá almennilega þjónustu. Ég er að fara til Ameríku næsta miðvikudag og ég er ekki komin með neinn gjaldeyri né neitt. Þannig það sökkar frekar mikið.
En vonandi bjargast allt.

Ég er í nýrri vinnu, eða aukavinnu hjá Stjörnustelpum. Heví næs, rosalega sniðugt líka. Endilega chekkiði á síðunni þeirra www.stjornustelpur.is
Svo er ég reyndar enn að vinna fyrir danól.

Nú styttist óðum í svar frá AFS. Er búin að fara í alltof mikið af sprautum og testum og rugli.
Og þar sem ég er ekki mikið hrifin af sprautum þá er þetta ekkert rosalega mikið stuð.

En já ætla reyna hafa þetta svolítið stutt. Er að fara til mömmu gömlu að kósý-ast. Svo er það sumarbústaður á morgun :)

Þangað til næst....
Ástrós Ţórjónsdóttir

Open again

25. september 2008 klukkan 01:19
Jæja ég sakna þess að vera miðpunktur alls. Þessvegna hef ég ákveðið að opna síðuna mína aftur. Nenni ekki að blogga á myspace eða eitthvað. That´s just lame. Og fyrir utan það ætlaði ég að halda þessari síðu uppi sérstaklega ef ég fer svo út eftir áramótin.
En það er ekkert rosalega mikið að frétta af mér síðan seinustu færslu nema hún var skrifuð í mars 2007. Þetta helst er að ég er náttúrlega flutt, ég flutti til Keflavíkur svo inní Kópavog og svo í Vogana með foreldrunum mínum og long term boyfriend Braga. Nú erum við í okkar íbúð í Hafnafirði. Sem er kósý og fín. Mjög fínt að vera svona einn og sér, þó ég nenni aldrei að elda langar helst alltaf að fara til mömmu í mat og mamma þrífur enn af mér :D En það er líka því að þvottavélin okkar er biluð.

En ég var búin að plana þetta blogg svolítið, sá á einni síðu uppáhalds 50 stelpumyndirnar sem manneskjan hefði séð og ég ákvað að gera þannig semí. Þetta er samt meira bara uppáhaldsmyndir sem ég get horft á þegar mér líður illa og mér líður betur þegar ég er búin að horfa á þær. Þær eru samt ekki allar flokkaðar undir ,,chickflick". Og svo endilega kommenta hvað ykkur finnst um myndirnar. Röðin er ekkert spes bara svona eins og ég mundi. Þannig ekki alveg nr eitt uppáhalds og seinasta leiðinlegust.


Moulin Rouge
Ég man þegar ég sá þessa mynd fyrst. Ég varð svo agndofa og hissa ég bara man hvernig ég hugsaði vá. Þetta er svona vá mynd.

The Princess Diaries 1 og 2
Típískt stúlku mynd, bæði eitt og tvö. Finnst mjög gaman af þeim

Runaway Bride
Hver fýlar ekki Juliu Roberst


Freaky Friday
Segjum bara, ég kann öll lögin í myndinni utan að og flesta myndina líka. Tók gott ,,feis" á þessari mynd.

What a Girl Wants
Ég hef alltaf verið mikill Amanda Bynes fan þessi mynd var eitt af fyrstu sem ég sá með henni, hún heillar mig mjög

Miss Congeniality

Sweet Home Alabama
Ég dýrka dýrka þessa mynd. Svo mikil ást í henni

Pretty Women

Legally Blonde
Fyndið hvað þegar ég horfði á þessa mynd að ég hugsaði ,,heyrðu já ef hún getur þetta hlýt ég að geta þetta líka". Þarna byggði ég áhuga minn á lögfræði sem fór reyndar úti viðskiptafræði....

Never Been Kissed

Sidney White

How to lose a guy in 10 days
Ahh litli hundurinn, just love love love this!

Now and Then

Hairspray

She´s all that

Dirty Dancing
Mér líður alltaf vel eftir að horfa á Dirty Dancing, ég loksins keypti hana um daginn og hefur hún verið mikið í tækinu. Einn daginn mun brúðkaupsdansinn minn vera eins og lokadansinn þeirra (séns) en það yrði samt kúl.

Center Stage
Þetta er mynd sem ég fékk áhuga á dansi aftur, alltaf þegar ég er nýbúin að horfa á hana geri ég eitthvað brjálað eins og skrái mig á dansnámskeið eða fer og dansa um alla íbúðina. Svo mikill boðskapur.

Bring It On
,,I´m sexy, I´m cute...." hver dýrkar ekki bring it on!

Cinderella Story
Besta mynd ever! Dýrka Hilary og Chad í þessari mynd, mig langar mikið að vera hún þarna... Kannski vil ég bara vera leikkona

Mean Girls

Honey

Notebook

Grease

She´s the Man

Another Cinderella Story
Fáir þekkja þessa mynd. Kannski þvi hún var að koma út og kom bara í Ameríkunni. Ég hef horft á hana svona 20 sinnum síðan ég dl henni. Það var fyrir svona einni og hálfri viku.

Breakfast at Tiffany´s

Sabrina

The Sisterhood of the Traveling Pants

Star Wars (allar)

When In Rome

Getting There

New York Minute

Raise Your Voice

The Perfect Man

A Walk to Remember
Sorglegasta ástarsaga allra tíma

Because I Said So
Þessi mynd finnst mér vera svo mikil mamma og ég, that why i love it..

Ice Princess

13 Going on 30

Failure to Launch

Confessions of a Teenage Drama Queen

Shall We Dance

The Devil Wears Prada

The Girl Next Door

Just Friends

Out Cold

The Sweetest Thing

Bratz
Hún kemur ótrúlega á óvart fyrir stelpu eins og mig...

Picture This

Forgetting Sarah Marshall


Þið verðið endilega að fyrirgefa mér í enskuslettunum en ég er bara farin að hugsa svo mikið á ensku núna  það er helst óhuggnalegt. En endilega deilið ykkar myndum, og bara kommenta og stuff skiluru. Heeeelllú ég er back in business! Whúhú, svo á ég eftir að gera hitt og þetta fyrir síðuna....

Þangað til næst

..............
Ástrós Ţórjónsdóttir

Vonbrigđi enn á ný...

07. mars 2007 klukkan 18:36
Nýja uppáhaldslagið mitt heitir fyrirgefningar með heimskum synum. Þetta er íslenskt rapp, ég er komin með nett æði fyrir íslensku rappi.

Undafarnir dagar hafa verið einstakir. Það eru sæludagar í skólanum sem þýðir að það fylgir alltaf árshátíð. En þessi stúlka fer ekki, hinsvegar á ég nú bara sérhannaðan kjól sem kostaði HELLINGS pening og hef ekkert að gera við hann. Alveg yndislegt hvað maður nennir ekki að vona lengur.

Ég held að ég megi ekki gera nein plön því þau fara alltaf úrskeiðis, sem er svoldið leiðinlegt. Mig langar bara að liggja uppí rúmi með ógeðslega mikið af nammi og gera ekkert annað en að horfa á sjónvarpið og vera ógeðslega löt. Það er hvort sem er enginn skóli þessa vikuna.
Þessi byrjun á mars er bara ömurleg, ekkert skemmtilegt búið að koma fyrir. Veit ekki betur en að allir eru bara að hætta saman og öllum líður illa. Allt bara öm!

Ég er búin að vera ná í þætti og diska af netinu núna undanfarið. Komin með netið heima aftur. Er að missa mig yfir Veronica Mars 3 seríunni og nýja Gus Gus diskinum sem er bara brill!
Annars geri ég lítið á daginn nema bara í tölvunni og læt mér leiðast.
Ég hef ekkert fallega til að skrifa um þannig ég ætla ekki að hafa þetta lengra og sökkva mér oní Veronica Mars.
Ástrós Ţórjónsdóttir

Still alive

19. febrúar 2007 klukkan 20:02

Komið öll blessuð og sæl. Vildi bara deila með heiminum að ég væri enn á lífi.
Það er alveg gríðalega langt síðan ég hef bloggað og biðst ég innilega afsökun á því.
En margt hefur gerst, svona sem ég man þá átti Sandra Dís mín afmæli í gær. Til lukku með það sæta 19 ára skvísí =*


Ein mynd af okkur saman.

Já svo var afmælið hjá Heiðari fyrir 3 helgum, var það bara æðislegt! Fórum svo á ellefuna, já ég fór á ellefuna. Og var maður að koma heim snemma morguns, og viti menn ég flaug á hausinn á síðustu fkn 3 þrepum heima hjá mér. Algjör snillingur en marin eftir það.

Ég hef séð mikið af nýjum myndum undafarið og mæli einstaklega mikið með Little Miss Sunshine og The Pursuit Of Happyness. Báðar alveg einstaklega mikil snilld!

En á þarsíðustu helgi skrapp ég vestur og var það ofsastuð. Ég hitti mömmu mína, systur mína, guðmund brynjar og alla ættingja eiginlega. Svo var þorrablót og skellti ég mér á ball og alles. Ballið var klárlega algjör snilld og dönsuðum ég, minney, olga rut, remy og eva og fl alveg fram á nótt.
Svo var líka afskaplega róandi að komast vestur þótt ég hafi nælt mér í smá kvef í leiðinni.

Svo er síðasta vika búin að vera mjög fín. Ég fékk rós á valentínusardaginn nanananana :P Sem er enn á lífi! Og er ég bara búin að vera rúnta, kúra og hafa það gott. Helgin var ekki eins æðisleg, þar sem meijör beil var í gangi en ég lifi svosem með það. En á föstudeginum kíktum ég, fanney og hildur uppí bústað til strákana en vorum bara í 3 tíma sökun leiðindar.

Annars er lítið að frétta mér, eftir hvern skóladag kem ég hingað í Vesturhólana og er þar langt fram á kvöld oftast nær og kem aldrei heim til mín þessa dagana nema um 12 leytið. En ég ætla ekki að hafa þetta lengra og bið bara að heilsa öllum og have fun :)


Enda á einni sem er gömul og góð :)

Ástrós Ţórjónsdóttir

Lalalala

01. febrúar 2007 klukkan 21:56
Jæja ég ákvað að blogga hér í staðin fyrir á minnsirkus. En ég blogga rosalega mikið þar þannig gef ykkur bara slóðina þangað :D = http://www.minnsirkus.is/userpage/default.aspx?user_id=7118

En já allt gott að frétta af mér. Um helgina verður gasalegt djamm. Á laugardaginn er tvítugsafmæli hjá honum Heiðar, til hamingju með það sæti =* Þar er frítt bús og matur og svo verður spurningin hvort verður haldið niðrí bæ á Nasa eða á Klúbbinn. Kemur í ljós ef ég finn eitthvern skemmtilegan til að kíkja með mér.

Ég skrópaði ekkert í dag, fór í alla tímana mína og er geðveikt stolt af mér! Þótt þetta hafi bara verið tveir tímar og það er eitt sem mér líkar ekki við skólann hjá mér. Of mikið af myndarlegum einstaklingum, eiginlega bara strákum. Annars er planið í dag að koma mér heim, fara í ljós, heim í sturtu, og svo líklegast kíkja á rúntin eða jafnvel í kringluna bara. Því í dag fengu allir útborgað =D Eða svona flestir...

Svo er ég loksins að fara vestur. Fer vestur 8-11.febrúar þá ætla ég á þorrablótið og auðvita ekta sveitamannsball. Ég býst við geðveikri stemningu. Mig hlakkar líka ekkert smá til að fara vestur, hitta mömmu, Heiðu og guðmund, og svo líka Sólveigu sem ætlar á blótið! Bara jíbbí jei sko

En annars held ég að það sé lítið að frétta, pabbi og ragnar farnir aftur uppí borganes og verða þar í nokkrar vikur. Koma reyndar heim um helgarnar þannig ekkert partý hjá mér, bömmer. Ekki að ég hefði haldið party en maður veit aldrei. En ég er að pæla að slíta þessu og bara bið að heilsa öllum og endilega hringja í mig um helgina ef þú veist um eitthvað skemmtilegt =) Bæjó spæjó
Ástrós Ţórjónsdóttir

Update

18. janúar 2007 klukkan 21:58
Langað bara að láta vita af mér, ég er dáinn. Ekki enn. En ég er að jafna mig. Hitinn farinn niður, nú er bara hósti mannanna og svona fylgikvillar. Kem líklegast í skólann á mánudaginn, ætla reyna koma mér út samt á laugardeginum eða sunnudeginum. Þannig do please call me then!

En ég fékk sma svona ,,panik" kast í dag, fattaði hvað ég er búin að missa mikið úr skólanum bara á þessari vku. Hrillilegt! Talandi um skóla þá vorum við stúlkurnar að pæla skella okkur á MH ball í næstu viku, hafa smá næsheit í gangi.

Annars veit ég ekki afhverju ég bloggaði. Ætla bara hætta núna, þannig bæjó spæjó
Ástrós Ţórjónsdóttir

Update

18. janúar 2007 klukkan 21:58
Langað bara að láta vita af mér, ég er dáinn. Ekki enn. En ég er að jafna mig. Hitinn farinn niður, nú er bara hósti mannanna og svona fylgikvillar. Kem líklegast í skólann á mánudaginn, ætla reyna koma mér út samt á laugardeginum eða sunnudeginum. Þannig do please call me then!

En ég fékk sma svona ,,panik" kast í dag, fattaði hvað ég er búin að missa mikið úr skólanum bara á þessari vku. Hrillilegt! Talandi um skóla þá vorum við stúlkurnar að pæla skella okkur á MH ball í næstu viku, hafa smá næsheit í gangi.

Annars veit ég ekki afhverju ég bloggaði. Ætla bara hætta núna, þannig bæjó spæjó
Ástrós Ţórjónsdóttir

Aldrei liđiđ jafn illa!

16. janúar 2007 klukkan 20:40
Jæja típískt ég ekki satt. Nú þegar ég FÁRVEIK þá er ég alein í leiðinni.. Ég er búin að vera með 38-40 stiga hita síðustu daga, líður eins og versta kartöflupoka. Hata svona stundir, svo datt netið út heima þannig ekkert neit þar og sjónvarpið stundum með eitthvað vesen þannig ég get ekkert gert nema skemmta mér í einmannaleikanum mínum.

Ég þarf að eignast nýja vini, almennilega vini. Vilt þú vera vinur minn?
Nei ég segji svona, en það er sæmilegt að frétta fyrir utan þetta dót að ég sé veik.

Ég veit ekki afhverju en ég verð að segja Til hamingju með 21.árs afmæli Bragi Gunnlaugsson. Bara útaf kurteisi. En ég hef ekkert meira um að skrifa, skrifaði svo langt á minnsirkusblogginu mínu. Þannig bæjó spæjó
Ástrós Ţórjónsdóttir

nýjar myndir

09. janúar 2007 klukkan 19:38
jæja ég og helena voru að leika okkur með webcamið og photobooth í skólanum á makkanum mínum í dag og í gær. Myndirnar eru hér : http://www.minnsirkus.is/userpage/default.aspx?user_id=7118

endilega chekkið á þeim, annars er allt gott að frétta af mér. Skólinn fínn og alles, þannig bara cioa í bili 
Ástrós Ţórjónsdóttir

Gleđilegt ár

07. janúar 2007 klukkan 22:42
Jæja freeekar langt síðan ég bloggaði. Myndi blogga um síðasta ár en hey það var bara ekkert svo spes þannig ég nenni því ALLS ekki! Áramótin voru sæmileg, vil ekki tala um þau.

En annars þessi helgi, eða gærkvöldið og dagurinn var yndislegur! Skrapp í kringluna, keypti One Tree Hill 3 séríu, loving it btw. Og svo var rúntað með Fanneyju og svo var skyndiákvörðun tekin og við fórum í bláa lónið. Mér hefur ekki liðið svona vel í mörg ár and so much softness. Svo var farið heim og gert sig fína og svo var leiðinni haldið uppí Grímsnes, voru nokkuð lengi á leiðinni útaf slæmu veðri en komumst þangað.
Fórum í geðveikt flottan bústað. Þar voru strákarnir, vinir fanneyjar btw en afskaplega yndislegir gaurar.

Verð að segja að ölvun var í hámarki hjá sumum, hvítvín var á listanum, bolla, bjór, vodki, skot og mun fleira. Bara velja úr, svo var hlegið, sagt brandara og sungið. Annars var þetta bara yndislegt.
Ég komst að því hvernig minningagreinin mín myndi verða ef ég skyldi deyja:

,,Við þekktum Ástrósu best með áfengi í hönd og sögurnar af sjálflýsandi kúkum"

Eða þannig ákváðum við það annars, Biggi var ekki alveg sáttur með söguna mína, en ég meina hey kúkur er afskaplega heilbrigður. Já þú/þið sem eru að lesa þetta skiljið ekki neitt en þannig á þetta að vera.

Vildi bara láta fólk vita að mér líður vel, eða suma dagana. Nú þegar skólinn er að byrja er maður svona upp og niður. En nú sér maður virkilega hverjir eru vinir þínir og hverjir ekki. Hver elskar þig og hver ekki, hver snýr baki í þig strax og hver ekki. Og ég er mjög sátt við mína vini. En ég ætla halda áfram að þynnkast og horfa á One Tree Hill, gera mig tilbúna fyrir hinn hræðilega skóla í fyrramáli. That I hate!

So cioa =)
Ástrós Ţórjónsdóttir

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...